Fréttir | 06. mars 2019

Forsetafrúin í Berlín

Eliza Reid forsetafrú er á ferðasýningu í Berlín þar sem hún flutti í morgun opnunarávarp í málstofu um hágæðaferðir. Frúin heimsótti líka bása íslenskra fyrirtækja á sýningunni og ræddi við starfsfólk. Í gærkvöldi tók Eliza þátt í vinnukvöldverði og ræddi þar við þýska blaðamenn. Ferðin er skipulögð í samvinnu við Íslandsstofu og sendiráð Íslands í Berlín.
Fréttatilkynning um ferðina.

Þessi síða notar fótspor
Skoða nánar