Fréttir | 02. apr. 2019

Helen Clark

Forseti á fund með Helen Clark, fyrrverandi forsætisráðherra Nýja Sjálands. Clark situr þessa dagana ráðstefnuna What Works í Reykjavík. Meðal annars var rætt um leiðir að heimsmarkmiðum Sameinuðu þjóðanna um sjálfbæra þróun. Einnig var fjallað um sameiginlega hagsmuni Íslendinga og Nýsjálendinga í málefnum norður- og suðurslóða og reynslu Nýsjálendinga á sviði fjöldaferðamennsku. Þá var rætt um hryðjuverkaárásirnar í Christchurch á Nýja Sjálandi í nýliðnum mánuði og virðingarverð viðbrögð stjórnvalda og almennings þar í landi.

Þessi síða notar fótspor
Skoða nánar