Forseti á fund með forstjóra Alþjóðavinnumálastofnunarinnar, Guy Ryder, á Bessastöðum. Alþjóðavinnumálastofnunin (ILO) hefur það hlutverk að standa vörð um mannréttindi og vinnuréttindi í þágu réttlætis og friðar. Á fundinum var m.a. rætt um tæknibreytingar og hvaða áhrif þær hafa á störf fólks, frítíma og réttindi. Einnig var rætt um streitu og kulnun í starfi og þær leiðir sem hægt er að fara til að afstýra þeim vanda og vá. Ryder er staddur hér á landi með föruneyti sínu vegna aldarafmælis Alþjóðavinnumálastofnunarinnar og sækir ráðstefnuna The Future of Work sem íslensk stjórnvöld standa að í samvinnu við stofnunina og Norrænu ráðherranefndina.
Fréttir
|
03. apr. 2019
Alþjóðavinnumálastofnunin
Aðrar fréttir
Fréttir
|
22. mars 2024
Menningarmót í Norðlingaskóla
Forseti sækir Menningarmót í Norðlingaskóla.
Lesa frétt
Fréttir
|
21. mars 2024
Alþjóðadagur Downs heilkennisins
Forseti tekur á móti pari af mislitum sokkum
Lesa frétt