Fréttir | 26. apr. 2019

Stjórnarskráin

Forseti á fund með fulltrúum Stjórnarskrárfélagsins. Rætt var um stöðu stjórnarskrármálsins og framtíðarhorfur, auk hugmynda um endurskoðun stjórnarskrárinnar í tímans rás. Þá var á fundinum minnst Ágústs Þórs Árnasonar aðjúnkts sem féll nýverið frá og var í dag til moldar borinn. Ágúst var í hópi helstu fræðimanna á Íslandi á sviði stjórnarskrármála.

Þessi síða notar fótspor
Skoða nánar