Forseti tekur á móti liðsmönnum Öldungaráðs Landhelgisgæslu Íslands og mökum þeirra. Í ráðinu sitja fyrrverandi starfsmenn gæslunnar til sjós og lands og hittast þeir að jafnaði einu sinni í mánuði. Forseti flutti ávarp, m.a. um merkt framlag gestanna í landhelgisdeilum og björgunarstörfum. Var síðan rætt um landsins gagn og nauðsynjar að fornu og nýju.
Fréttir
|
29. apr. 2019
Öldungaráð Landhelgisgæslunnar
Aðrar fréttir
Fréttir
|
22. mars 2024
Menningarmót í Norðlingaskóla
Forseti sækir Menningarmót í Norðlingaskóla.
Lesa frétt
Fréttir
|
21. mars 2024
Alþjóðadagur Downs heilkennisins
Forseti tekur á móti pari af mislitum sokkum
Lesa frétt