Forseti sækir landgræðsluátak á vegum GGF, Gróðurs fyrir fólk í landnámi Ingólfs. Í dag voru nemendur í 4. bekk Víðistaðaskóla að störfum í vistvangi á vegum samtakanna undir Geitahlíð í nágrenni Krýsuvíkur. Forseti lét til sín taka og gróðursetti græðlinga með ungmennunum. Með þessum aðgerðum er spornað við uppblæstri og nemendur fræðast jafnframt um umhverfisvernd og loftslagsmál. Embætti forseta Íslands kolefnisjafnar flugferðir á vegum þess með gróðursetningu á Bessastaðanesi og einnig er unnið að endurheimt votlendis á þeim slóðum.
Fréttir
|
14. maí 2019
Gróður í landnámi Ingólfs
Aðrar fréttir
Fréttir
|
20. apr. 2024
Grímsfjall og Jökulheimar
Forseti heldur að Grímsvötnum í Vatnajökli.
Lesa frétt
Fréttir
|
16. apr. 2024
Forsætisráðherra Skotlands
Forsetahjón eiga fund með Humza Yousaf.
Lesa frétt