Á fyrsta degi heimsóknar sinnar til Winnipeg eiga forseti og Eliza Reid forsetafrú fundi með forystumönnum Manitobafylkis. Fyrsti fundurinn var með Brian Bowman, borgarstjóra Winnipegborgar, og Tracy konu hans, en sá fundur var haldinn að lokinni sérstakri athöfn þar sem fáni Íslands var dreginn að húni við hlið kanadíska fánans og fána Manitoba fyrir utan ráðhús borgarinnar; flutti forseti ávarp við það tækifæri. Þá áttu forsetahjónin fund með ríkisstjóra Manitoba, frú Janice C. Filmon, og maka hennar Gary Filmon og loks fund með Brian Pallister, forsætisráðherra Manitoba, og Ester Pallister, konu hans.
Fréttir
|
18. maí 2019
Fundir í Winnipeg
Aðrar fréttir
Fréttir
|
22. mars 2024
Menningarmót í Norðlingaskóla
Forseti sækir Menningarmót í Norðlingaskóla.
Lesa frétt
Fréttir
|
21. mars 2024
Alþjóðadagur Downs heilkennisins
Forseti tekur á móti pari af mislitum sokkum
Lesa frétt