Fréttir | 20. maí 2019

Múlalundur 60 ára

Forseti sækir afmælisfagnað Múlalundar, vinnustofu SÍBS. Múlalundur er öflugt þjónustu- og framleiðslufyrirtæki sem er rekið í því skyni að skapa störf fyrir fólk með skerta starfsorku. Fyrirtækið fagnar nú 60 ára afmæli. Í stuttu ávarpi óskaði forseti Múlalundi og starfsliði staðarins að fornu og nýju til hamingju með afmælið og minnti á mikilvægi hans í samfélaginu.

Þessi síða notar fótspor
Skoða nánar