Fréttir | 21. maí 2019

Skátavinur

Forseti gengur til liðs við samtökin Friends of Scouting in Europe, FOSE. Við athöfn á Bessastöðum afhenti Jörgen Guldborg Rasmussen, stofnandi og heiðursformaður FOSE, forseta viðurkenningarskjal þessu til staðfestingar. Viðburðinn sótti forystusveit skáta á Íslandi, þeirra á meðal Marta Magnúsdóttir skátahöfðingi og Hulda Sólrún Guðmundsdóttir, varaformaður Evrópustjórnar skáta. Auk forseta er Ólafur Ragnar Grímsson, fyrrverandi forseti Íslands, íslenskur liðsmaður FOSE.

Þessi síða notar fótspor
Skoða nánar