Fréttir | 18. júní 2019

Afmælishátíð á Hrafnistu

Forsetahjón sækja hátíðarsamkomu á Hrafnistu í Hafnarfirði. Þangað var boðið þeim Íslendingum sem fagna aldarafmæli á þessu ári. Auk þeirra sóttu viðburðinn íbúar Hrafnistu, gestir þeirra og starfslið og forystusveit Hrafnistuheimilanna á landinu. Auk forseta fluttu ávörp þau Dagný Erla Gunnarsdóttir, þingmaður á þingfundi ungmenna í gær, og Hálfdan Henrysson, stjórnarformaður Sjómannadagsráðs. Þá var tónlist flutt og dansatriði sýnd.

Þessi síða notar fótspor
Skoða nánar