Fréttir | 23. ágú. 2019

Opið hús á menningarnótt kl. 13:00-16:00

Á morgun, laugardaginn, 24. ágúst, verður forsetasetrið að Bessastöðum opið almenningi sem liður í Menningarnótt 2019. Gestum býðst að skoða Bessastaðastofu milli klukkan 13:00 og 16:00. Auk hinna merku steinhúsa frá 18. öld geta gestir virt fyrir sér sýnishorn gjafa, sem forseta hafa borist, fornleifar í kjallara, bókhlöðu og forsetabíllinn, Packard bifreið Sveins Björnssonar, sem er árgerð 1942. Fréttatilkynning.

Þessi síða notar fótspor
Skoða nánar