Fréttir | 28. ágú. 2019

Íþróttir unglinga

Forseti á fund með breskum fræðimönnum á sviði íþróttasálarfræði og innlendum gestgjöfum þeirra. Chris Harwood og Karl Steptoe frá Loughborough-háskóla á Englandi eru hér á landi á vegum Hafrúnar Kristjánsdóttur, lektors á íþróttafræðisviði Háskólans í Reykjavík. Gestirnir kynntu leiðir til þess að styrkja sálarheill ungmenna í íþróttum og stuðla þannig að vellíðan þeirra innan vallar sem utan. Nánar má fræðast um rannsóknir þeirra og framlag hér.

Þessi síða notar fótspor
Skoða nánar