Fréttir | 04. sep. 2019

Saltfiskvika

Forsetafrú, Eliza Reid, tekur þátt í Saltfiskviku sem haldin er á veitingastöðum hringinn í kringum landið dagana 4. – 15. september 2019. Alls taka 13 veitingastaðir þátt í viðburðinum – allir með a.m.k. einn saltfiskrétt á matseðlinum. Gestakokkar frá Ítalíu, Spáni og Portúgal eru jafnframt væntanlegir sem munu elda á völdum stöðum. 
Markmiðið með Saltfiskvikunni er að gera þessari einni verðmætustu útflutningsafurð Íslands hærra undir höfði og auka veg hennar heima fyrir.
 

Þessi síða notar fótspor
Skoða nánar