Forseti situr viðskiptaþing í Reykjavík ásamt Ram Nath Kovind Indlandsforseta. Á þinginu var rætt um sóknarfæri í viðskiptum íslenskra og indverskra fyrirtækja. Skipuleggjendur þingsins voru Íslensk-indverska viðskiptaráðið, sem Félag atvinnurekenda rekur, Samtök iðnaðarins og Íslandsstofa, auk ASSOCHAM, Associated Chambers of Commerce and Industry of India, og CII, Confederation of Indian Industry. Ávarp forseta.