Forseti tekur á móti forystusveit Íþróttasambands fatlaðra og fulltrúum sams konar sambanda annars staðar á Norðurlöndum. Íþróttasamband fatlaðra fagnar í ár 40 ára afmæli. Íþróttamenn innan vébanda þess keppa nú reglulega á mótum innanlands sem utan og stefnir hópur fatlaðra íþróttamanna nú á Ólympíumót fatlaðra sem haldið verður í Tókýó að ári, að loknum Ólympíuleikunum þar.