Fréttir | 17. sep. 2019

Sendiherra Mongólíu

Forseti tekur á móti hr. Tulga Narkhuu, nýjum sendiherra Mongólíu, sem afhendir trúnaðarbréf sitt á Bessastöðum. Rætt var um sameiginlega hagsmuni ríkjanna á sviði loftslagsmála og áskoranir í þeim efnum. Þá var rætt um langa og viðburðaríka sögu Mongólíu og mikilvægi menntunar á framfarabraut. Loks var rætt um áhuga Mongóla á því að fræðast um ástæður að baki velgengni Íslendinga í íþróttum undanfarin ár og áratugi.

Þessi síða notar fótspor
Skoða nánar