Fréttir | 30. sep. 2019

Foreldrajafnrétti

Forseti á fund með fulltrúum Félags um foreldrajafnrétti. Rætt var um foreldraútilokun þar sem börn bíða tjón vegna ákvarðana og afstöðu hinna fullorðnu. Félagið vill stuðla að jafnrétti foreldra á grundvelli Samnings Sameinuðu þjóðanna um réttindi barnsins, og sömuleiðis að foreldrar beri sameiginlega ábyrgð á barni og njóti réttar til að axla þá ábyrgð með reisn. Á fundinum var rætt um leiðir að því marki.

Þessi síða notar fótspor
Skoða nánar