Fréttir | 30. sep. 2019

Orkumál

Forseti flytur opnunarávarp á alþjóðaráðstefnunni Charge í Reykjavík. Á annað hundrað manns að utan sækir viðburðinn auk innlendra þátttakenda. Á þessari ráðstefnu, sem hefur verið haldin þrisvar áður hér á landi, er sjónum beint að vörumerkjastjórnun og orkumarkaði. Í þetta sinn er sérstök áhersla lögð á sjálfbærni og nýsköpun í þeim efnum. Friðrik Larsen, lektor við viðskiptafræðideild Háskóla Íslands, skipulagði ráðstefnuna með starfsliði sínu.

Þessi síða notar fótspor
Skoða nánar