Fréttir | 03. okt. 2019

Kvikmyndahátíð

Forseti býður gestum alþjóðlegu kvikmyndahátíðarinnar RIFF, Reykjavík International Film Festival, til móttöku á Bessastöðum. Við það tilefni voru franska kvikmyndaleikstjóranum Claire Denis veitt heiðursverðlaun RIFF fyrir framúrskarandi listræna sýn (e. Creative Excellence Award for film directing). Rithöfundurinn Auður Ava Ólafsdóttir kynnti Denis og verk hennar og forseti afhenti svo verðlaunin.

Þessi síða notar fótspor
Skoða nánar