Fréttir | 04. okt. 2019

Stöðvum stríð gegn börnum

Forsetahjón hefja táknrænt átak gegn hernaði sem bitnar á börnum. Barnaheill og alþjóðasamtökin Save the Children, sem fagna í ár aldarafmæli, standa að verkefninu. Forsetahjón settu handarfar sitt á vegg í Smáralind í Kópavogi og aðrir viðstaddir fylgdu svo því fordæmi. Hermt er að um okkar daga búi fimmta hvert barn á eða nærri vígvöllum í heiminum og einatt er þeim engin miskunn sýnd.

Þessi síða notar fótspor
Skoða nánar