Fréttir | 09. okt. 2019

Jamal-Nenets

Forseti á fund með fylkisstjóra Jamal-Nenetshéraðs í Rússlandi og föruneyti hans. Héraðið liggur að Norður-Íshafinu og sækja gestirnir þaðan Hringborð Norðurslóða sem haldið er í Reykjavík þessa daga. Rætt var um framtíð héraðsins, olíu- og gasvinnslu þar, áhrif hlýnandi loftslags á mannlíf og náttúru á norðurslóðum og auknar siglingar eftir því sem ís hopar og bráðnar.

Þessi síða notar fótspor
Skoða nánar