Fréttir | 22. okt. 2019

Krýning Japanskeisara

Forsetahjón eru viðstödd glæsilega krýningarathöfn Naruhito Japanskeisara og Masako keisaraynju. Athöfnin fór fram í keisarahöllinni í Tókýó að viðstöddum um 2500 gestum. Meðal þeirra voru um 180 þjóðarleiðtogar og fulltrúar ríkja hvaðanæva úr veröldinni. Naruhito tók við keisaratign af Akihito föður sínum í apríl síðastliðnum en var formlega krýndur í dag.

Þessi síða notar fótspor
Skoða nánar