Fréttir | 24. okt. 2019

Fyrirlestur um smáríki

Forseti flytur fyrirlestur í boði Tókýó háskóla. Fyrirlesturinn var fluttur á ensku og bar heitið The Might of the Weak. The Role of Small States in International Relations and the Case of Iceland. Í kjölfarið svaraði forseti fjölmörgum fyrirspurnum nemenda og annarra áheyrenda um stöðu Íslands í samfélagi þjóðanna, möguleika Íslendinga til að hafa áhrif á alþjóðavettvangi og flókið samspil hagsmuna og hugsjóna í utanríkisstefnu ríkja.

Þessi síða notar fótspor
Skoða nánar