Fréttir | 24. okt. 2019

Sendiráð Íslands

Forsetahjón sækja móttöku Elínar Flygenring, sendiherra Íslands í Japan. Viðburðinn sóttu einkum vinir og velunnarar Íslands í landinu, þeirra á meðal þingmenn og forsvarsmenn fyrirtækja sem eiga í viðskiptum við Íslendinga. Þá voru Íslendingar í Japan á meðal gesta og sendiherrar hinna norrænu ríkjanna í landinu. Með móttöku sendiherra lauk heimsókn forsetahjóna til Japans í tilefni af krýningu nýs keisara, Naruhito.

Þessi síða notar fótspor
Skoða nánar