Fréttir | 28. okt. 2019

Súrdeigsbrauð ársins 2019

Forsetafrú Eliza Reid afhendir sigurvegara Súrdeigsbrauðs ársins 2019 verðlaun. Keppnin var haldin á vegum útgáfufyrirtækisins Í boði náttúrunnar sem gefur út tímaritið Fæða | Food – A little Taste of Iceland (F/F). F/F er veglegt sérblað um íslenska matarmenningu sem er bæði á íslensku og ensku og er dreift víða um heim. Til úrslita kepptu Sandholt bakarí, The Coocoo’s Nest og Litla brauðstofan og stóð The Coocoo's Nest uppi sem sigurvegari.

 

 

Þessi síða notar fótspor
Skoða nánar