Forseti tekur á móti nýjum sendiherra Gíneu, Alexandre Cécé Loua, sem afhendir trúnaðarbréf sitt á Bessastöðum. Rætt var um sameiginlega hagsmuni ríkjanna á alþjóðavettvangi, ekki síst á sviði loftslagsmála. Þá var rætt um framtíðarhorfur í Gíneu, áform þar um nýtingu vatnsorku og bætta heilbrigðisþjónustu um gervallt landið, grundvallarhagsmunamál þjóðarinnar.