Fréttir | 29. okt. 2019

Sendiherra Palestínu afhendir trúnaðarbréf

Forseti tekur á móti nýjum sendiherra Palestínu, Marie Antoinette Sedin, sem afhendir trúnaðarbréf sitt á Bessastöðum. Rætt var um stöðu Palestínu í samfélagi þjóðanna og þakkaði sendiherra atbeina íslenskra stjórnvalda í þágu landsins. Þá var rætt um framtíðarhorfur fyrir botni Miðjarðarhafs og mögulegar leiðir til friðar og framfara.

Þessi síða notar fótspor
Skoða nánar