Fréttir | 31. okt. 2019

Málstofa og opið hús

Forsetahjón sátu málstofu um nýsköpun og sjávarútveg í Bæringsstofu í Grundarfirði. Þar var m.a. farið yfir þróun síðustu áratuga í útgerð og fiskvinnslu á svæðinu, breytingar í mannafla og tæknibúnaði og vikið að markaðssetningu matvæla frá svæðinu og samstarfstækifærum. Að lokinni málstofunni bauð bæjarstjórnin íbúum Grundarfjarðar og forsetahjónum að þiggja veitingar í Sögumiðstöðinni á staðnum og þar flutti forseti ávarp sem lesa má hér.

Þessi síða notar fótspor
Skoða nánar