Fréttir | 31. okt. 2019

Skólar í Grundarfirði

Forseti og forsetafrú heimsækja Grunnskóla Grundarfjarðar og ræða þar við nemendur og hlýða á kynningu á starfi skólans. Þau komu einnig við í leikskóladeild skólans og héldu svo í leikskólann Sólvelli og skoðuðu hann og ræddu við starfsfólk og leikskólabörn. Í hádeginu áttu hjónin fundi í Fjölbrautaskóla Snæfellsness á Grundarfirði og ræddu þar við nemendur og starfsmenn og snæddu með þeim hádegisverð. Margir í hópi heimamanna höfðu gert sért dagamun og voru í grímubúningum í tilefni af hrekkjavöku.

Þessi síða notar fótspor
Skoða nánar