Fréttir | 05. nóv. 2019

Sendiherra Súdans

Forseti tekur á móti nýjum sendiherra Súdans, dr. Emad Mirghani Abdelhamid Altohamy, sem afhendir trúnaðarbréf sitt á Bessastöðum. Rætt var um framtíðarhorfur í Súdan, áform um almennar kosningar þar innan tveggja ára og nauðsyn þess að styrkja og efla innviði í landinu, auka menntun og atvinnu. Einnig var rætt um möguleika íslenskra stjórnvalda og fyrirtækja á því að styðja þau gæfuspor.

Þessi síða notar fótspor
Skoða nánar