Fréttir | 11. nóv. 2019

Nýsköpunarverðlaun ferðaþjónustunnar

 

Forseti afhendir nýsköpunarverðlaun Samtaka ferðaþjónustunnar við hátíðlega athöfn í Reykjavík. Verðlaunin voru nú veitt í sextánda sinn og féllu í hlut Sjóbaðanna á Húsavík. Tvö önnur fyrirtæki í ferðaþjónustu voru tilnefnd til verðlaunanna og fengu viðurkenningar fyrir vikið, Hótel Ísafjörður vegna skíðagönguferða sinna og eldgosa- og hraunsýningin The Icelandic Lava Show í Vík í Mýrdal. Í máli sínu við verðlaunaafhendinguna minnti forseti á mikilvægi fagmennsku, vandvirkni og metnaðar í ferðageiranum og bæru fyrirtækin þrjú, sem hlutu verðlaun, vitni um þau sannindi.

 

Þessi síða notar fótspor
Skoða nánar