Fréttir | 03. des. 2019

Jólatré á Bessastöðum

Börn í leikskólunum Holtakoti og Krakkakoti á Álftanesi og yngri nemendur í Álftanesskóla aðstoðuðu forsetahjónin við að kveikja á jólatrjám fyrir framan Bessastaðastofu. Dansað var kringum trén við undirleik Reynis Jónassonar og svo var boðið upp á piparkökur og heitt skúkkulaði.

Þessi síða notar fótspor
Skoða nánar