Forseti á fund með formanni Félags heyrnarlausra og verkefnastjóra væntanlegs táknmálsapps. Sigríður Vala Jóhannsdóttir verkefnastjóri sýndi þá möguleika sem appið mun búa yfir. Formaðurinn, Heiðdís Dögg Eiríksdóttir, kynnti jafnframt afstöðu félagsins til hugmynda um að geta skuli íslensks táknmáls í stjórnarskrá.