• Frá vinstri: Forsetafrú Eliza Reid, forseti Íslands, dr. Janus Guðlaugsson, Hjálmar Árnason, Jakob Frímann Magnússon, Helgi Árnason, Þórunn Jarla Valdimarsdóttir, Skúli Eggert Þórðarson, Bára Grímsdóttir, Bogi Ágústsson, Guðrún Ögmundsdóttir, Auðbjörg Brynja Bjarnadóttir, Tatjana Latinovic, Hildur Kristjánsdóttir, Jón Ólafsson, Þórður Guðlaugsson og Halldóra Geirharðsdóttir. Á myndina vantar Jóhönnu Erlu Pálmadóttur.
Fréttir | 17. júní 2019

Fálkaorðan

Við hátíðlega athöfn á Bessastöðum í dag, 17. júní 2019, sæmdi forseti Íslands sextán Íslendinga heiðursmerki hinnar íslensku fálkaorðu. Þeir eru

Auðbjörg Brynja Bjarnadóttir ljósmóðir og hjúkrunarstjóri, Kirkjubæjarklaustri, riddarakross fyrir framlag til heilbrigðis- og björgunarstarfa í heimabyggð
Bára Grímsdóttir tónskáld og formaður Kvæðamannafélagsins Iðunnar, Reykjavík, riddarakross fyrir varðveislu og endurnýjun á íslenskum tónlistararfi
Bogi Ágústsson fréttamaður og formaður Norræna félagsins, Reykjavík, riddarakross fyrir störf á vettvangi fjölmiðlunar og norrænnar samvinnu
Guðrún Ögmundsdóttir félagsráðgjafi og fyrrverandi þingkona, Reykjavík, riddarakross fyrir framlag í þágu mannúðar og jafnréttisbaráttu hinsegin fólks
Halldóra Geirharðsdóttir leikkona, Reykjavík, riddarakross fyrir framlag til íslenskrar leiklistar
Helgi Árnason skólastjóri, Reykjavík, riddarakross fyrir störf á vettvangi skóla og skáklistar ungmenna
Hildur Kristjánsdóttir ljósmóðir og dósent við Háskóla Íslands, Reykjavík, riddarakross fyrir störf í þágu ljósmæðra og skjólstæðinga þeirra
Hjálmar Waag Árnason fyrrverandi skólameistari, þingmaður og framkvæmdastjóri Keilis, Reykjanesbæ, riddarakross fyrir forystu á vettvangi skólastarfs og menntunar
Jakob Frímann Magnússon tónlistarmaður, Reykjavík, riddarakross fyrir störf á vettvangi íslenskar tónlistar
Dr. Janus Guðlaugsson íþrótta- og heilsufræðingur, Álftanesi, riddarakross fyrir framlag til eflingar heilbrigðis og íþrótta eldri borgara
Jóhanna Erla Pálmadóttir verkefnastjóri og fyrrverandi framkvæmdastjóri Textílseturs Íslands, Blönduósi, riddarakross fyrir störf í þágu safna og menningar í heimabyggð
Jón Ólafsson fyrrverandi prófessor, Kópavogi, riddarakross fyrir rannsóknir, fræðistörf og kennslu á sviði haffræði
Skúli Eggert Þórðarson ríkisendurskoðandi, Reykjavík, riddarakross fyrir nýjungar í stjórnun og mannauðsmálum hjá hinu opinbera
Tatjana Latinovic deildarstjóri, formaður Kvenréttindafélags Íslands og formaður Innflytjendaráðs, Reykjavík, riddarakross fyrir framlag til atvinnulífs, jafnréttis og málefna innflytjenda
Þórður Guðlaugsson vélstjóri, Kópavogi, riddarakross fyrir lífsstarf á vettvangi sjávarútvegs og björgunarafrek í mannskaðaveðri
Þórunn Jarla Valdimarsdóttir sagnfræðingur og rithöfundur, Reykjavík, riddarakross fyrir framlag til sagnfræða og íslenskra bókmennta

Þessi síða notar fótspor
Skoða nánar