Fréttir | 06. jan. 2020

Sorplaus lífstíll

Eliza Reid forsetafrú á fund með Beu Johnson sem hefur stundum verið kölluð „The Mother of the Zero Waste Lifestyle". Hún hefur farið víða um heim til að halda fyrirlestra um hinn sorplausa lífsstíl fjölskyldunnar, sem vakið hefur athygli í fjölmiðlum, og bók hennar, Engin sóun – leiðarvísir að einfaldara, sorplausu heimili, hefur komið út á meira en 25 tungumálum. Bea Johnson hélt fyrirlestur í Veröld - húsi Vigdísar um sorplausan lífsstíl í tilefni af útgáfu bókarinnar á íslensku. 

 

Þessi síða notar fótspor
Skoða nánar