Fréttir | 15. jan. 2020

Kveðja vestur á firði

Forseti birti í dag eftirfarandi kveðju á Fésbókarsíðu sinni:

„Ég sendi hlýjar kveðjur vestur á firði og einlægar þakkir til allra sem brugðust við og sinntu nauðsynlegum störfum eftir snjóflóðin á Flateyri og í Súgandafirði. Blessunarlega varð ekki mannskaði, annað tjón er unnt að bæta.
Enn vorum við minnt á ægimátt náttúruaflanna. Um leið sönnuðu gildi sitt varnargarðarnir, sem reistir voru á Flateyri eftir flóðið mikla fyrir aldarfjórðungi, þótt litlu hafi mátt muna nú – slíkur var hamfarakrafturinn þar.
Á reglubundnum fundi okkar forsætisráðherra í morgun fræddi Katrín Jakobsdóttir mig um fund hennar með almannavörnum í samhæfingarmiðstöðinni í Skógarhlíð í morgun og þær upplýsingar sem þar komu fram. Sem betur fer virðist veður nú ganga niður á Vestfjörðum en áfram þarf að hafa vara á, flytja fólk og vistir og veita fólki stuðning og aðstoð eins og þörf krefur.
Ég ítreka góðar kveðjur og þakkir. Á þessum stundum sannast gildi samstöðu og samkenndar.“

Þessi síða notar fótspor
Skoða nánar