Fréttir | 28. jan. 2020

Sendiherra Kýpur

Forseti tekur á móti nýjum sendiherra Kýpur, Penelope Erotokritou. Rætt var um framtíðurhorfur Kýpverja og kynnti sendiherra málstað sinna stjórnvalda í deilum við ráðamenn í Tyrklandi um hafsbotnsréttindi undan ströndum eyjarinnar. Þá var rætt á breiðum grundvelli um nauðsyn umbóta í fjármálakerfum heimsins og möguleika á auknum samskiptum Íslendinga og Kýpverja á ýmsum sviðum.

Þessi síða notar fótspor
Skoða nánar