Fréttir | 04. feb. 2020

Sendiherra Malasíu

Forseti tekur á móti nýjum sendiherra Malasíu, Nur Ashikin Mohd Taib, sem afhendir trúnaðarbréf sitt á Bessastöðum. Rætt var um sameiginlega hagsmuni Íslendinga og Malasa á ýmsum sviðum, ekki síst loftslagsmálum. Þá var rætt um möguleika á auknum viðskiptum milli ríkjanna, meðal annars sölu íslenskra sjávarafurða til Malasíu.

Þessi síða notar fótspor
Skoða nánar