Fréttir | 05. feb. 2020

Menntadagur atvinnulífsins

Forseti sækir Menntadag atvinnulífsins, árlegan viðburð sem eftirtalin samtök standa að: Samtök atvinnulífsins, Samtök iðnaðarins, Samorka, Samtök ferðaþjónustunnar, Samtök fjármálafyrirtækja, Samtök fyrirtækja í sjávarútvegi og Samtök verslunar og þjónustu. Forseti afhenti Menntaverðlaun atvinnulífsins og komu þau að þessu sinni í hlut Orkuveitu Reykjavíkur. Á Menntadegi atvinnulífsins í ár var sjónum einkum beint að sköpun í íslensku atvinnulífi og menntakerfi.

Þessi síða notar fótspor
Skoða nánar