Í dag, föstudaginn 7. febrúar, verður forsetasetrið að Bessastöðum opið almenningi sem liður í Vetrarhátíð og Safnanótt 2020. Gestum býðst að skoða Bessastaðastofu milli klukkan 19:00 og 22:00. Auk hinna merku steinhúsa frá 18. öld geta gestir virt fyrir sér sýnishorn gjafa, sem forseta hafa borist, og fornleifar sem veita innsýn í búsetu á Bessastöðum frá landnámstíð. Gestir munu geta skoðað Bessastaðastofu, móttökusal, bókhlöðu forsetasetursins og kirkjuna. Þá mun ein af fyrri embættisbifreiðum forseta Íslands verða til sýnis á hlaði Bessastaða. Sjálfboðaliðar, m.a. nemendur úr framhaldsskólum og úr Háskóla Íslands, verða gestum til aðstoðar.
Fréttir
|
07. feb. 2020
Opið hús á Safnanótt
Aðrar fréttir
Fréttir
|
22. mars 2024
Menningarmót í Norðlingaskóla
Forseti sækir Menningarmót í Norðlingaskóla.
Lesa frétt
Fréttir
|
21. mars 2024
Alþjóðadagur Downs heilkennisins
Forseti tekur á móti pari af mislitum sokkum
Lesa frétt