Fréttir | 08. feb. 2020

Nýsveinahátíð

Forseti flytur ávarp og afhendir verðlaun á Nýsveinahátíð Iðnaðarmannafélagsins í Reykjavík. Á þessum árlega viðburði voru þeir nýsveinar heiðraðir, sem sköruðu fram úr í námi sínu, og meistarar þeirra sömuleiðis. Þá voru heiðursiðnaðarmenn ársins tilnefndir og þá sæmd hlutu að þessu sinni hjónin Jófríður Benediktsdóttir og Hafliði Aðalsteinsson. 
Þessi síða notar fótspor
Skoða nánar