Fréttir | 25. feb. 2020

Nýr sendiherra Afganistans

Forseti tekur á móti nýjum sendiherra Afganistans, Youssof Ghafoorzai, sem afhendir trúnaðarbréf sitt á Bessastöðum. Rætt var um framtíðarhorfur í Afganistan og gang þeirra friðarviðræðna sem nú standa yfir í Doha, höfuðborg Katar. Þá var rætt um framlag íslenskra stjórnvalda til friðar og samfélagsuppbyggingar í Afganistan og frekari möguleika í þeim efnum.

Þessi síða notar fótspor
Skoða nánar