Fréttir | 26. feb. 2020

Eyrarrósin

Forsetafrú afhendir Eyrarrósina, viðurkenningu fyrir framúrskarandi menningarverkefni utan höfuðborgarsvæðisins. Sá heiður féll að þessu sinni í hlut Skjaldborgar – Hátíðar íslenskra heimildarmynda sem haldin er á Patreksfirði. Einnig voru Kakalaskáli í Skagafirði og Menningarstarf í Alþýðuhúsinu á Siglufirði tilnefnd í ár. Byggðastofnun, Listahátíð í Reykjavík og Air Iceland Connect standa að verðlaununum. Forsetafrú er verndari þeirra.

Þessi síða notar fótspor
Skoða nánar