Fréttir | 22. apr. 2020

Forseti Finnlands

Forseti á símafund með Sauli Niinistö, forseta Finnlands. Forsetarnir ræddu um þann vanda sem veiran hefur skapað á Íslandi, í Finnlandi og um víða veröld. Finnlandsforseti vakti máls á góðu fordæmi Íslendinga í skimun fyrir veirunni og forseti sagði margt mega læra af samstarfi ríkis og atvinnulífs í Finnlandi, meðal annars í ljósi snarpra viðbragða ýmissa finnskra fyrirtækja sem leita nú leiða til að framleiða varning sem kemur að notum í baráttu við veiruna.

Þessi síða notar fótspor
Skoða nánar