Embætti forseta Íslands hefur auglýst til umsóknar sex sumarstörf sem ætluð eru námsmönnum sumarið 2020 og eru tengd átaki stjórnvalda til að vinna gegn atvinnuleysi í kjölfar farsóttarinnar. Um er að ræða störf sem tengjast þremur verkefnum: (1) Könnun á hugmyndum um friðun og framtíðarnýtingu Bessastaðaness; (2) Rannsókn á lífríki Bessastaðatjarnar og Lambhúsatjarnar og lífríki og landfræði Bessastaðaness; og (3) Skráning bókasafns Bessastaða. Hægt er að fá nánari upplýsingar og sækja um störfin á vef Vinnumálastofnunar.
Fréttir
|
27. maí 2020
Sumarstörf fyrir námsmenn
Aðrar fréttir
Fréttir
|
22. mars 2024
Menningarmót í Norðlingaskóla
Forseti sækir Menningarmót í Norðlingaskóla.
Lesa frétt
Fréttir
|
21. mars 2024
Alþjóðadagur Downs heilkennisins
Forseti tekur á móti pari af mislitum sokkum
Lesa frétt