Fréttir | 09. júní 2020

Barnaspítali Hringsins

Forseti sækir hátíðarviðburð við Barnaspítala Hringsins í Reykjavík. Jeffrey Gunter, sendiherra Bandaríkjanna á Íslandi, afhenti spítalanum lækningatæki að gjöf fyrir hönd starfsfólks sendiráðsins. Páll Matthíasson, forstjóri Landspítala, tók við gjöfinni og þakkaði þennan vinarhug. Forseti flutti stutt ávarp og nefndi þar að atburðir síðustu vikna og mánaða staðfestu enn sem fyrr mikilvægi mannúðar og samkenndar í samfélagi manna. Þar að auki hefði barátta okkar við veiruna skæðu sýnt fram á mikilvægi vísindalegrar þekkingar þegar slíkan vágest ber að garði.

Þessi síða notar fótspor
Skoða nánar