Fréttir | 27. ágú. 2020

Söguöldin

Forseti á fund með Terri Barnes, kennara í sagnfræði við Portland Community College í Oregonfylki í Bandaríkjunum. Barnes kennir sögu víkinga- og sögualdar og hefur dvalist við rannsóknir hér á landi að undanförnu. Rætt var um leiðir til að miðla fróðleik til nemenda og notkun og misnotkun liðinnar tíðar í stjórnmálabaráttu líðandi stundar.

Þessi síða notar fótspor
Skoða nánar