Fréttir | 17. sep. 2020

Velferð barna

Eliza Reid forsetafrú flytur opnunarávarp á vinnustofu um aukna samvinnu sýslumanna, lögreglu, félagsþjónustu og barnaverndar í málum er lúta að velferð barna. Vinnustofan, sem haldin var í Vestmannaeyjum, er liður í tilraunaverkefni sem hlotið hefur styrk frá félags- og barnamálaráðherra og dómsmálaráðherra. Sýslumanninum í Vestmannaeyjum, Arndísi Soffíu Sigurðardóttur, hefur verið falið að stýra verkefninu.

Þessi síða notar fótspor
Skoða nánar