Eliza Reid forsetafrú afhendir Svartfuglinn, verðlaun fyrir spennu- eða glæpasögu sem rithöfundarnir Yrsa Sigurðardóttir og Ragnar Jónasson stofnuðu til í samvinnu við bókaforlagið Veröld. Verðlaunin eru hugsuð fyrir höfunda sem ekki hafa sent frá sér spennu- eða glæpasögu áður og eru nú veitt í þriðja sinn.
Katrín Júlíusdóttir hlaut verðlaunin í ár fyrir spennusögu sína Sykur.