Fréttir | 23. okt. 2020

HeForShe ráðstefna

Forseti flytur aðalræðu á ráðstefnu sem UN Women efndi til undir merkjum HeForShe átaksins (#HeForShe). Einnig tók hann þátt í umræðum og svaraði fyrirspurnum á fundinum sem var með fjarfundarsniði. Með forseta í pallborði voru Phumzile Mlambo-Ngcuka, framkvæmdastjóri UN Women, Bob Moritz, stjórnarformaður PwC International, og Winston Duke leikari. Í ávarpi sínu ræddi forseti meðal annars um þann árangur sem Íslendingar hafa náð á sviði jafnréttis en minnti líka á að enn er verk að vinna á þeim vettvangi.

Þessi síða notar fótspor
Skoða nánar